|
Post by hrafn on Sept 11, 2007 10:36:01 GMT -5
Við höfum núna klárað umfjöllun okkar um orðhlutafræðilega greiningu og myndun. Getið þið nefnt dæmi um notkun í máltæknikerfum á i) annars vegar greiningu (e. morphological parsing) þ.e. að brjóta orð upp í einstök myndön, og hins vegar ii) myndun (e. morphological generation), þ.e. að mynda orð úr einstökum myndönum?
|
|
|
Post by bjarnia on Sept 11, 2007 13:21:45 GMT -5
Eins og bent var á í tíma í dag er hægt að nota greiningu til þess að gera leit skilvirkari, eins og gert er í leitarvélinni Emblu. Ef leitað er að Hestur, þá greinir hún orðið og leitar að Hestur, hest, hesti og hest osfrv, þeas leitar að öllum myndum orðsins. Hjálpar meira í íslensku en ensku reyndar.
Orðmyndun gæti verið kannski hægt að nota til að leiðrétta villur td.. ef að parserinn finnur að orð er í rangri tölu getur hann búið til fleirtölumyndina með orðmyndun.. þrjár mús - > þrjár mýs
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Sept 12, 2007 7:45:26 GMT -5
það er notað í tölvuorðabók. maður getur sláð inn orð í hvaða mynd sem er og það byrtist svo stofnin. lika notað í Puki, þar sem (ég held að hafa heyrt það) reglur eru geymd en ekki allir beygingar orða. samt nokkur villur þar samkvæmt íslenskukennari mitt. vorum að bera saman Puki og einhvern vefforrit (man ekki eftir slóð) og vefforritin var betur.
|
|
|
Post by indridi on Sept 12, 2007 8:22:53 GMT -5
Það nýtist líka til að búa til ný orð eins og Kenn-ari þar notum við stofnin á sögninni kenna og bætum við ari til að búa til nafnorð. Við getum líka notað þetta til að ná stofnum út úr orðum sem hafa verið búin til með forskeyti ör-fínn.
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Sept 12, 2007 12:54:29 GMT -5
það er lika notað í spellchecker. þar bjóðar forrit upp á mismundni myndir af orðinu. ef það væri t.d. að skoða allan setning og merkja orð þá væri hægt að sjá hvaða föll í nafn- og lysingaorðum eða persóna í sagnorðum væri hægt að nota og svo búa til rétt úrval af myndum til að koma í stað.
|
|
|
Post by sigrunma on Sept 12, 2007 18:48:38 GMT -5
Þetta er mjög hentugt þegar maður t.d. veit ekki hvernig orð eru skrifuð. T.d. ef ég ætlaði að finna eitthvað orð í ensku sem ég veit hvernig er sagt en ekki skrifað, þá gæti forritið hjálpað mér að finna það. Eins og t.d. í Google þegar eitthvað orð er skrifað vitlaust þá koma þeir með athugasemdina ,,did you mean <orðið>" Þetta hjálpar notendum við að finna það sem þeir eru að leita að og eins að læra rétta stafsetningu orðanna.
|
|
|
Post by birnagu on Sept 14, 2007 5:04:48 GMT -5
Ég sé fyrir mér að það væri hægt að nota orðhlutagreiningu til að semja t.d. ljóð í ákv. bragarhætti. Eða til að skrifa almennan "bullnuts generator" sem myndi taka inn parametra og skila eftir atvinkum brúðkaupsræðu, minningargrein, útskriftarræðu, uppsagnarbréfi, bókmenntaritgerð ..
Einning til að hjálpa "vélmenni" að svara spurningum. það gæti þá sett orðin sem það grípur úr spurningunni í rétt fall.
|
|
|
Post by imezzepitorig on May 8, 2019 7:14:36 GMT -5
|
|
|
Post by anexapo on May 8, 2019 9:07:03 GMT -5
|
|
|
Post by esiunah on May 25, 2019 23:33:39 GMT -5
|
|
|
Post by ayiomima on May 26, 2019 1:40:07 GMT -5
|
|
|
Post by uglekziyilo on Jun 1, 2019 11:33:14 GMT -5
|
|
|
Post by iluruuqo on Jun 1, 2019 13:05:51 GMT -5
|
|
|
Post by acaneonun on Jul 6, 2019 19:35:36 GMT -5
|
|
|
Post by olulovuvoa on Jul 6, 2019 21:49:56 GMT -5
|
|