|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Aug 28, 2007 5:43:09 GMT -5
Reglulegar segðir eru til margra hluta nytsamlegar og voru amk tvö dæmi nefnd í tímanum í dag. Hver voru þessi dæmi og hvaða fleiri dæmi getið þið nefnt? Þið getið m.a. viðrað hér allskyns hugmyndir af tólum sem áhugavert væri að smíða með þessari tækni.
|
|
|
Post by bjarnia on Aug 28, 2007 5:55:07 GMT -5
Það er tilvalið að nota regular expressions til þess að 1) Valideita input.. til dæmis til þess að valideita email field í formi, tjekka hvort að emailið sé "valid".. ^\w+@[a-zA-Z_]+?\.[a-zA-Z]{2,3}$ Einfalt dæmi sem er þó ekki fullkomið 2) Leita í texta og replacea, td ef ég væri að forrita og þyrfti að bæta inn parameter í fall sem ég er að nota á mörgum stöðum.. gæti ég leitað að function("(.*)"); og replaceað með function("$1", "nýrparam"); Ætla að geyma restina handa öðrum
|
|
aegir
New Member
Posts: 1
|
Post by aegir on Aug 28, 2007 7:43:27 GMT -5
Ég nota reglular expressions mikið í forritun þegar ég er að senda fyrirspurnir á aðrar síður.
Til dæmis ef vil gera forrit til að leita í símaskránni, þá get ég sent fyrirspurn á ja.is og notað svo regular expression til að marka svarið og gefa mér aðeins þau gögn sem ég hef áhuga á (sleppa öllu html).
Einnig getur þetta verið nytsamlegt ef að ég vil breyta mörgum skrám í einu.
|
|
|
Post by birnagu on Aug 28, 2007 10:36:35 GMT -5
amk tvö dæmi nefnd í tímanum í dag .. hmm hver voru þau ?
1. Reglulegar segðir eru notaðar í þýðendum til að sannreyna að forrit sé málfræðilega rétt saman sett. (syntax checking)
2. Við textaleit, t.d. í grep til að pikka út línur í skrá sem innihalda ákv streng eða mynstur
Ég nota reglulegar segðir í praxís til að finna skrár sem ég man hálfpartinn hvað heita og líka til að flytja og rename-a margar skrár í einu. Annars aðallega í skólaverkefnum :] T.d. við að lesa inn löglegar formúlur eða lögleg breytuheiti
|
|
|
Post by indridi on Aug 28, 2007 16:06:39 GMT -5
Ég hef nýlega notað reglulegar segðir til að sannreyna innslátt. Það er hægt að nota það tam í að tékka af bankareikninga (sem eru á ákveðnu formi), símanúmer, kennitölur(þó þær þurfi að vísu að vartöluprófa lika). Eins og margir hérna eru búnir að minnast á er þetta fínt í hvers kyns pattern matching.
Mér dettur samt í hug að það gæti verið nytsamlegt ef hægt væri að gefa hlutum segðarinnar ákveðið vægi.
Dæmi: ég er að leita að upplýsingum um linsur. Dæmi ég vil finna linsuna canon 28mm 1.8. Þá myndi ég setja fram segð sem gæti verið eitthvað á leið við canon.*28mm.*1.8 (ekki réttur syntax ég veit en hvernig táknar maður punkt). Þá myndi þessi segð skila mér alls konar síðum sem vörðuðu þessa tilteknu linsu ekki neitt og þyrfti því að þvælast í gegnum fullt af efni sem ég hef ekki áhuga á. En ef ég gæti gefið canon hlutanum aukið vægi væri líklegra að éf endaði á einhverju vitrænu. Gæti litið svona út, ýmyndum okkur að við notum " ' " til að tákna að um vægi er að ræða.
'9(canon).'1(28mm).'1(1.8)
þar með væri hægt að láta algrímið sem vinnur þetta raða niðurstöðum eftir vægi sem væri byggt inn í segðina og því líklegra til að skila marktækari niðurstöðum. Þær væri
|
|
|
Post by sigrunma on Aug 29, 2007 4:42:26 GMT -5
Í tímanum var talað um að RS væri notað t.d. þegar þyrfti að leita í miklu magni af texta af einhverju ákveðnu (orði, beygingarflokk, lengsta orði eða bara t.d. upphafsstafi). Eins væri hægt að nota RS til að finna samsetningu á ákveðnum orðum, eins og til dæmis ef einhver væri að leita að þágufallssýki í stórum texta þá væri hægt að setja RS sem myndi finna sagnorð þar sem persónufornöfn stæðu á undan til að fá dæmi eins og ,,Mig langar´´ eða það algengara ,,Mér langar´´ Ég fann á netinu forrit sem heitir Kodos og það prófar reglulegar segðir. Er það ekki eitthvað sniðugt? Til að sjá hvort það sem sett er upp virki eins og ætlunin er?
|
|
|
Post by wowposter on Sept 11, 2008 1:26:12 GMT -5
|
|