|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 16, 2007 6:44:45 GMT -5
Hér má ræða hvað eina sem tengist forritunarverkefni IV um orðræðulíkanið.
|
|
|
Post by bjarnia on Oct 23, 2007 18:38:59 GMT -5
Hvað eigum við að gera ef það kemur inn persónufornafn í 3 persónu fyrst í texta? Td texti sem byrjar svona: "Hann er frábær" Ég bara bæti því inn sem orðræðueining.. er það ekki í lagi? Það skapar reyndar það situation að það geta önnur persónufornöfn vísað í þetta sama persónufornafn.. sem ég veit ekki hvort að sé kostur eða galli td "Hann er frábær. Hann er geðveikur" Þarna mundi, allavega eins og ég geri það, "Hann" bætast við fyrst inn sem orðræðueining, og síðan í seinna skiptið mundi seinna "Hann" vísa í fyrra "Hann"... sem er þannig séð ekkert ólógískt í þessu dæmi, en getur komið mjög undarlega út í öðrum...
|
|
|
Post by bjarnia on Oct 23, 2007 18:41:22 GMT -5
Önnur spurning líka..
[PP [MWE_PP fyrir ao framan aa MWE_PP] [NP tvær tfvfo [AP gamlar lvfosf AP] konur nvfo KONUR-7 NP] PP]
Á þetta að koma sem:
KONUR-7, tvær gamlar konur { kyn: v, tala: f } eða KONUR-7, gamlar konur { kyn: v, tala: f }
í listanum?
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 23, 2007 20:21:50 GMT -5
Hvað eigum við að gera ef það kemur inn persónufornafn í 3 persónu fyrst í texta? Td texti sem byrjar svona: "Hann er frábær" Ég bara bæti því inn sem orðræðueining.. er það ekki í lagi? Jú, það er í lagi. Þú gætir reyndar búið til einingu sem þú hreinlega kallar "óþekktur" (í karlkyni eintölu) og svo látið persónufornöfnin sem passa við þá einingu benda á hana (þar með talið það fyrsta). En það er einmitt rétt hjá þér að þótt einingin sjálf finnist ekki, þá er mikilvægt að halda utanum hugsanlega samvísun í textanum (eins og þessi tvö tilvik af "hann" sem þú gafst sem dæmi).
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 23, 2007 20:27:12 GMT -5
Önnur spurning líka.. [PP [MWE_PP fyrir ao framan aa MWE_PP] [NP tvær tfvfo [AP gamlar lvfosf AP] konur nvfo KONUR-7 NP] PP] Á þetta að koma sem: KONUR-7, tvær gamlar konur { kyn: v, tala: f } eða KONUR-7, gamlar konur { kyn: v, tala: f } í listanum? Þetta á að koma sem "tvær gamlar konur", þ.e. það er nákvæmasta lýsingin á þessum "hlut" sem um er rætt.
|
|
|
Post by indridi on Oct 24, 2007 16:01:17 GMT -5
hmmm ég fæ þennan texta ekki þegar ég keyri IceParser hvaða parametra eigum við að nota?
Eða semsagt hann er ekki parsaður svona.
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 25, 2007 11:56:56 GMT -5
Verið viss um að senda IceParser samfellda textann, en ekki textann þar sem eitt orð er í línu! Það er stór munur á úttakinu sem skýrist af því að ný lína virðist samsvara byrjun á nýrri setningu. Þáttunin verður svo auðvitað ekki eins hjá ykkur öllum ef þið eruð að nota ykkar eigin þáttara
|
|
|
Post by wowposter on Sept 8, 2008 6:02:50 GMT -5
|
|
|
Post by wowposter on Sept 11, 2008 1:26:09 GMT -5
|
|
|
Post by wowposter on Oct 29, 2008 2:14:09 GMT -5
|
|