|
Post by hrafn on Sept 25, 2007 17:23:16 GMT -5
Hér getið þitt sett fram spurningar og/eða vangaveltur varðandi mörkunarverkefnið.
|
|
|
Post by hrafn on Oct 2, 2007 5:55:16 GMT -5
Í buildLexicon.pl eigið þið að skrifa út orðasafn á sniðinu: af 3151 aþ 2959 aa 192 afa 66 nkee 27 nkeþ 24 nkeo 15 afar 42 aa 41 nkfn 1 ... Hinn möguleikinn er að einfalda málið (ég geri ráð fyrir að nemendur með tölvunarfræðibakgrunn velji fyrri leiðina :-)): af aþ afa nkee afar aa .... Athugið að í fyrra tilvikinu er þægilegt að nota svokallað "multi-dimensional hash" í Perl (sjá t.d. www.unix.org.ua/orelly/perl/prog3/ch09_04.htm) til að halda utan um möguleg mörk og fjölda þeirra fyrir tiltekið orð.
|
|
|
Post by bjarnia on Oct 2, 2007 6:03:50 GMT -5
Ég er búinn að gera verkefnið, en hef þó 2 spurningar: 1) Er nauðsynlegt að gera accuracy hlutann í perl? get ekki sett þetta allt í eina scriptu hjá mér út af því að ég þarf að keyra þann hluta í perl
2) Aukabónusinn.. er séns að fá að skila honum seinna, en samt fá bónusinn? Sé ekki fram á að hafa tíma fyrir hann vegna miðannarprófa
|
|
|
Post by hrafn on Oct 2, 2007 9:41:17 GMT -5
Aftast í verkefnalýsingunni stendur: Þið megið nota annað forritunarmál en Perl ef þið viljið.
Já!
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Oct 2, 2007 14:13:52 GMT -5
hvernig er hægt að leita í hash table? ef ég ætla að leita eftir key sem er sama sem einhverju variable. hvernig geri ég það? fann alls konar dæmi á netinu en það virkar ekkert af þeim.
|
|
|
Post by hrafn on Oct 2, 2007 15:04:00 GMT -5
hvernig er hægt að leita í hash table? ef ég ætla að leita eftir key sem er sama sem einhverju variable. hvernig geri ég það? fann alls konar dæmi á netinu en það virkar ekkert af þeim. Nota exist fallið. Á www.tutorialspoint.com/perl/perl_hashes.htm er ágætis yfirlit yfir helstu aðgerðir sem tengjast tætitöflum (e. hashes).
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Oct 2, 2007 15:09:02 GMT -5
var að nota það. virkar ekki. fæ villa þegar ég reyni að keyra með þessi syntax.
|
|
|
Post by hrafn on Oct 3, 2007 5:35:26 GMT -5
var að nota það. virkar ekki. fæ villa þegar ég reyni að keyra með þessi syntax. Þín villa getur ekkert haft með exist fallið að gera því það er notað út um allan heim! Eitthvað annað veldur villu hjá þér.
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Oct 3, 2007 6:23:36 GMT -5
hvað er með "eq"? fann það á aðra vefsiðu. en það finnar aldrei neitt. hvernig á að nota eq til að bera saman streng í breytu og streng í hash?
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Oct 3, 2007 13:58:45 GMT -5
til hvers erum við að búa til hash table í dæmi 1 ef við þurfum að taka þetta inn úr venjulegt skjal aftur í dæmi 2? er ekki betur að hafa allt í sama forrit svo að maður getur nytt sér þessi hash table sem var búið til?
|
|
|
Post by hrafn on Oct 3, 2007 16:47:43 GMT -5
til hvers erum við að búa til hash table í dæmi 1 ef við þurfum að taka þetta inn úr venjulegt skjal aftur í dæmi 2? er ekki betur að hafa allt í sama forrit svo að maður getur nytt sér þessi hash table sem var búið til? Tilgangurinn er að skilja á milli þjálfunar og mörkunar. Markarinn sjálfur, þ.e. baseTagger.pl, á ekki að þurfa að þjálfa í hvert sinn sem hann markar nýjan texta. Hann á einungis að lesa inn orðasafn sem byggt hefur verið áður með þjálfun. Með því getur hann í raun tekið inn hvaða orðasafn sem er, ekki bara það sem hefur verið búið til úr 01TM.txt. Athugið að hér er þjálfun auðvitað mjög einföld en ímyndið ykkur að þið værið t.d. að þjálfa HMM markara og marka svo nýjan texta með honum. Í því tilviki myndi maður alls ekki gera þjálfun um leið og mörkun. Sama hugsun er að baki í baseTagger.pl.
|
|