|
Post by hrafn on Oct 3, 2007 10:06:10 GMT -5
Af hverju getum við þurft á setningagreiningu að halda í máltæknikerfum, þ.e. greiningu í einstaka setningarliði (e. phrases) og hlutverk (e. syntactic functions)?
|
|
|
Post by birnagu on Oct 3, 2007 10:59:25 GMT -5
Ertu að meina t.d. hvort Noun Phrase (NP) er gerandi eða þolandi í setningunni ?
hér er "ljótur maður" Noun Phrase
Ljóti maðurinn hljóp á húsið Húsið hljóp á ljóta manninn
|
|
|
Post by bjarnia on Oct 4, 2007 9:17:13 GMT -5
Margræðni eins og talað var um í síðasta tíma kemur upp í hausinn.
En ætli það sé ekki aðalega vegna þess að til dæmis í íslensku þá stjórna nafnorð föllum og kynum á öðrum orðflokkum. Þá þurfum við að geta greint setninguna niður og séð hvaða orð eiga við hvern þolanda, því að sum orð sem eru tengd þessum þolanda eru eins og öllum eða sumum formum og þá er ekki hægt að greina þau út frá því sjálfu heldur þarf að athuga við hvern það á.
Mér dettur reyndar engin dæmi í hug akkúrat núna, en ég vona að það viti allir hvað ég er að tala um.
|
|
|
Post by hrafn on Oct 8, 2007 4:15:25 GMT -5
Hvernig getur setningagreining hjálpað til í: 1) Málfræðileiðréttingu 2) Vélrænum þýðingum
|
|
ida
New Member
Posts: 22
|
Post by ida on Oct 8, 2007 8:38:12 GMT -5
í báðum hlutum á að vita hvernig orð tengst saman í setningu. t.d. í leiðréttingum væri ekki hægt að finna villar ef orðið passar saman með kyn og fall af einhvern annan orð í setningu. einnig verður erfitt að þyða rétt ef hægt væri að færa hvert orð bara hvar sem er í setningu án að taka tengðar setningarhlutir með sér.
|
|
|
Post by sigrunma on Oct 8, 2007 9:02:08 GMT -5
Þegar það er búið að setningagreina texta þá er auðveldara að sjá hvernig setningar eru byggðar upp í ákveðnu máli. Það auðveldar því vélrænar þýðingar því það er komið upp ákveðið mynstur sem forrit getur unnið eftir. Eins auðveldar þetta málfræðileiðréttingar því þá getur forritið skoðað umhverfi orðsins sem er rangt skrifað (eða rétt) og fundið út hvort það geti staðið t.d. sögn á ákveðnum stað í setningunni.
|
|
|
Post by indridi on Oct 9, 2007 4:35:13 GMT -5
1. Er ekki málið hér að aðstoða við að leiðrétta málfræði til að geta séð eins og við höfum verið að ræða í tíma hvort að greiningin fellur að því tungumáli sem að verið er að skrifa í.
2. Hjálpar þetta ekki við að að viðhalda samhengi orðanna og þannig vinna úr því að þýðingar verði jafnfræmt málfræðilega réttar að þýðingu lokinni með því að tryggja að sömu setningarhlutar séu í þýðingunni og voru í inntakinu?
|
|
|
Post by birnagu on Oct 11, 2007 7:52:44 GMT -5
Hvernig getur setningagreining hjálpað til í: 1) Málfræðileiðréttingu 2) Vélrænum þýðingum 1) Setningagreining heldur m.a. utanum hvert er andlag sagnar. Þar með er hægt að sjá ef andlag vantar eða ef það er í röngu falli. 2) Þar sem uppbygging setninga er mismunandi milli tungumála, þá væri hægt að nota setningagreiningu til að "endurraða" setningahlutum og þar með mynda setninguna rétt í málinu sem þýtt er í.
|
|
|
Post by wowposter on Oct 29, 2008 2:13:49 GMT -5
|
|