|
Post by birnagu on Aug 24, 2007 15:39:29 GMT -5
á vef Stefáns Pálssonar segir m.a. um Tímaritavef Landsbókasafnsins www.timarit.is/Þjóðin tryllist af gleði Tímaritavefur Landsbókasafnsins er æði - en jafnframt eitt best varðveitta leyndarmálið í netheimum. Starfsmenn bókasafnsins keppast við að skanna inn blöð og tímarit, sem hægt er að leita í með öflugri orðaleitarvél. Gallinn er hins vegar að lítið sem ekkert er gert í að kynna nýjungarnar. Þannig uppgötvaði ég fyrir tilviljun um daginn að byrjað væri að bjóða upp á orðaleit í fjölda gamalla blaða á borð við Ísafold og Lögréttu. Núna er Tímaritavefurinn farinn að hlaða inn Fréttablaðinu og má því lesa og leita í fyrsta og öðrum árgangi þess. Ég treysti mér ekki til að endurbæta hans orðalag
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Aug 28, 2007 5:37:08 GMT -5
Takk fyrir ábendinguna, þetta er afar fróðlegt! Önnur uppspretta góðra sígildra texta á ensku er Project Gutenberg sem finnst á slóðinni www.gutenberg.org/.
|
|