|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 16, 2007 6:43:12 GMT -5
Orðræðugreining (e. Discourse Analysis) er mjög þverf*gleg (breytið þessari ritskoðunarstjörnu í "ag") grein sem gengur út á að skoða notkun máls í einhverju samhengi. Þegar notkunin og samhengið er kannað, kemur í ljós að það er gríðalega margt sem spilar inn í ferli samskiptanna. Benda þessi vísindi þá til þess að það sé vonlaust fyrir okkur að búa til vélar sem skilja fólk, eða veita þau okkur von um að nægur skilningur geti náðst?
|
|
|
Post by sigrunma on Oct 17, 2007 11:59:21 GMT -5
Bara með því að nota broskalla ;D þá sýnum við hvaða svipbrigði við viljum senda með þeim texta sem við skrifum. Það ætti því ekki að vera útilokað fyrir tölvur að geta skilið meira en eingöngu bókstafi. Einnig hefur verið hægt að kenna eins og talgervlum hvernig eigi að hækka rödd og breyta tón eftir því í hvaða samhengi texti er talaður. Það skiptir miklu máli þegar kemur að því að skilja það sem sagt er. Ekkert ætti því að vera útilokað að mínu mati
|
|
|
Post by birnagu on Oct 18, 2007 8:54:40 GMT -5
Getum við ekki sagt eins og gjarna er gert þegar viðfangsefnið er yfirþyrmandi, að þetta sé "áskorun". Við munum ekki sigrast á því í þessu námskeiði, en brettum upp ermar og leysum þetta skref fyrir skref..
Ég vil líka bæta við: Sérhver lausn hlýtur að vera ófullkomin, eða getur þú bent á fólk sem skilur fólk ?
|
|
|
Post by birnagu on Oct 21, 2007 8:47:21 GMT -5
Varðandi verkefnið (Orðræðulíkan)
Flokkast persónufornafnið sem Orðræðueining ? á úttakið að vera (sjá 3ju línuna):
BIL1, stóran bíl, {kyn:k, tala:e} KISA1, kisa, {kyn:v, tala:e} BIL1, hann, {kyn:k, tala:e} <-- á þessi lína að vera ?
b
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 22, 2007 5:07:24 GMT -5
Nei. Í þessu dæmi er BIL1 aðeins ein orðræðueining sem best er lýst hér sem stórum bíl. Persónufornafnið, sem er nafnliður og tilvísun, vísar einfaldlega á BIL1 en er ekki flokkað sem orðræðueining í sjálfu sér.
Athugið að orðræðueiningar eru ekki orð í texta, heldur eru þær hlutir eða hugtök sem orð geta vísað á.
|
|
|
Post by indridi on Oct 23, 2007 5:41:29 GMT -5
Væri einhver möguleiki að nýta sér það hversu ört menn savar til að gefa til kynna hversu mikinn áhuga þeir hvafa á því sem verið er að ræða. Kannski þarf þó að taka tillit til þess hversu hratt menn pikka almennt.
|
|
|
Post by birnagu on Oct 23, 2007 19:18:20 GMT -5
Væri einhver möguleiki að nýta sér það hversu ört menn savar til að gefa til kynna hversu mikinn áhuga þeir hvafa á því sem verið er að ræða. Kannski þarf þó að taka tillit til þess hversu hratt menn pikka almennt. Að okkur sé mikið niðri fyrir þegar við sláum ört á lyklaborðið :] góð pæling.
|
|
|
Post by Hannes Vilhjalmsson on Oct 23, 2007 20:50:08 GMT -5
Mér finnst það mjög góð hugmynd! Og þá einmitt mikilvægt að finna fyrst hver eðlilegur hraði notandans er.
Þetta er líka góður punktur varðandi spurningu þessa þráðar almennt: Orðræðugreiningin bendir okkur á að nota má margvísleg áhöld til að túlka og birta samskiptamarkmið.
Hér er hraðinn t.d. "áhald" sem bendir til "markmiðsins" áhuga (strangt til tekið þyrftum við að framkvæma notendapróf til að sannreyna þetta mynstur). "Markmiðið" áhuga má svo birta með öðru "áhaldi" í samskiptaumhverfinu, t.d. með því að stækka augu avatarsins.
Þessi mikli sveigjanleiki eykur þá kannski frekar von okkar um að vélar finni amk eitthvað bitastætt þegar þær þurfa að eiga við mannleg samskipti.
|
|
|
Post by bjarnia on Oct 24, 2007 7:01:22 GMT -5
Benda þessi vísindi þá til þess að það sé vonlaust fyrir okkur að búa til vélar sem skilja fólk, eða veita þau okkur von um að nægur skilningur geti náðst? Eins og var sýnt fram á í fyrirlestrinum hjá mér þar sem ég fjallaði um verkefni Hannesar með Spark frameworkið, þá er það greinilega einhver von um að skilningur náist. Fullkominn skilningur mun eflaust aldrei, eða allavega ekki í dag eða á morgun, nást, en viðunandi skilningur held ég að sé alveg raunhæft markmið.
|
|
|
Post by wowposter on Sept 8, 2008 6:02:49 GMT -5
|
|
|
Post by wowposter on Sept 11, 2008 1:26:09 GMT -5
|
|
|
Post by wowposter on Oct 29, 2008 2:13:57 GMT -5
|
|
|
Post by eqefowes on Apr 21, 2019 23:58:23 GMT -5
|
|
|
Post by apiukoyomux on May 15, 2019 10:52:53 GMT -5
|
|
|
Post by usecefejoato on May 15, 2019 12:53:08 GMT -5
|
|